fbpx Landmar Playa la Arena | Vita

Landmar Playa La Arena
4 stars

Vefsíða hótels

Glæsilegt og sérlega snyrtilegt fjögurra stjörnu hótel með allt sem þarf til að njóta lífsins í rólegu og þægilegu umhverfi. Vel staðsett á vesturströndinni, skammt frá mörgum af helstu náttúruperlum Tenerife og steinsnar frá fallegum baðströndum og allri þjónustu.

Á Playa la Arena er skemmtilegur og gróinn sundlaugagarður þar sem hægt er að flatmaga í skugga pálmatrjánna eða kæla sig í tveimur stórum sundlaugum. Á sundlaugarbarnum er hægt að svala þorstanum eða fá sér létt snarl á daginn auk þess sem þar er boðið upp á kvöldverðarmatseðil. Að auki eru þrír veitingastaðir á hótelinu: hlaðborðsstaðurinn Lava, Arena Restaurant sem býður upp á Miðjarðarhafsmatseðil og og matarbíllinn Macaronesia. Auk sundlaugarbarsins er líka bar í aðalbyggingu hótelsins þar sem ljúffengir kokteilar eru á boðstólum. Sýningar og skemmtiatriði fara fram á veröndinni. Í sundlaugargarðinum er einnig að finna Thelasso SPA, sérstaka slökunar- og heilsulaug. Líkamsræktaraðstaða er á svæðinu og sömuleiðis minigolf, tennisvöllur og skotfimisvæði.

Hótelið býður upp á sérstakan Platinum-klúbb fyrir 16 ára og eldri. Þeir sem borga sig inn í hann fá aðgang að glæsilegri útsýnissundlaug og sólbaðs- og slökunaraðstöðu sem aðeins er fyrir fullorðna. Það er tilvalið fyrir þá sem vilja dekra við sig og njóta í ró og næði. Þar er einnig sérstakur snakkbar fyrir Platinum-gesti og þeir fá að auki aðgang að sérstökum svæðum annars staðar á hótelinu, t.d. á lobbýbarnum og á veitingastaðnum.

Herbergin á Playa la Arena eru hreinleg, björt, einföld og þægileg með öllu því helsta eins og loftkælingu, rúmgóðum svölum, snyrtivörum og ókeypis þráðlausu interneti. Hægt er að fá herbergi með baðkari og sjávarútsýni er í boði. Einnig eru sérstakar svítur í boði fyrir Platinum-gesti.

Hótelið er staðsett í Los Gigantes sem er í um 30 mín akstursfjarlægð frá Amerísku ströndinni.

Aðstaða

  • Sundlaugabar
  • Handklæði fyrir hótelgarð
  • Gestamóttaka
  • Veitingastaður
  • Sundlaug
  • Líkamsrækt

Vistarverur

  • Verönd/svalir
  • Hárþurrka
  • Loftkæling
  • Öryggishólf
  • Sjónvarp
  • Nettenging

Fæði

  • Morgunmatur, Hálft fæði, Allt innifalið

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun