Löng helgi á Tenerife
Sól og veðursæld
Myndagallerí
Vinsæla eyjan Tenerife
Verðdæmi eru í bókunarkössunum hér til hliðar.
Tenerife er skemmtilegur ferðamannastaður með fjölbreytt úrval af afþreyingu. Spænsk menning heimamanna blómstrar á svæðinu með tilheyrandi matargerð og mannlífi.

Hérna eru allar forsendur til staðar fyrir hinu fullkomna fríi. Sól og veðursæld er allt árið um kring. Hlýr sjórinn og gyllti sandurinn eru dásamlegir eiginleikar. Þú finnur frábært úrval af fjölbreyttum veitingastöðum og aragrúa af ólíkum verslunum á eyjunni.

Þú finnur hótel í gegnum VITA á nokkrum mismunandi stöðum:
Ameríska ströndin
Costa Adeje
Los Cristianos
Puerto de la Cruz
Gaman er að rölta á milli staða á göngugötu sem liggur meðfram allri ströndinni. Ekki er nema um hálftímaganga á milli Amerísku strandarinnar og Costa Adeje.
Mörg hótel bjóða upp á frítt skutl frá Costa Adeje og Playa Fanabe niður á Amerísku ströndina. Í Santa Cruz, sem er höfuðstaðurinn á eyjunni, er tilvalið að versla. Þar eru allar helstu verslanir eins og H&M, Zara og Primark. Flesta daga má finna útimarkaði á eyjunni sem selja allt milli himins og jarðar.
Tenerife býður uppá fjölbreytta afþreyingu fyrir fólk á öllum aldri. Hér að neðan eru nokkrir staðir sem hægt er að leggja leið sína til.
Loro Parque dýragarðurinn:
Þetta er frábær dýragarður þar sem hægt er að sjá dýrin leika listir sínar. Hér finnur þú höfrunga, sæljón, páfagauka og fl.
Mörgæsanýlendan í Loro Parque er stórfengleg. Gaman er að sjá górillur, tígrisdýr, skjaldbökur, hákarla og önnur dýr þar.

El Teide:
Hér finnur þú hæsta tind Spánar. Hann er 3.718 metrar og enginn sem kemur til Tenerife má missa af því að skoða þennan frábæra þjóðgarð. Loftslagið á svæðinu er ólíkt því sem þekkist annarsstaðar á eyjunum. Það er oft kallað hitabeltisháfjalla-loftslag og þykir einstakt. Ekki má gleyma að taka með sér peysu því það er hægt að fara með kláf upp í 3.555m hæð.
Santa Cruz höfuðstaðurinn:
Höfuðstaður Tenerife. Þangað er gaman að koma og sjá iðandi mannlífið við höfnina og á torginu Plaza de España. Mörg söfn eru í Sanda Cruz eins og lista- , náttúru- og mannvísindasafn, sögusafn ofl. Það er einnig gaman að kíkja í verslunarmiðstöðvarnar og sjá hvað þær hafa upp á að bjóða.
Siam Park vatns-rennibrautargarður:
Stórskemmtilegur vatns-rennibrautargarður ofan við Costa Adeje. Þessi garður býður upp á fjölbreyttar sundlaugar og rennibrautir af öllum stærðum og gerðum. Við mælum með að ná sólbekk og leiga læsanlegan skáp. Það er opið alla daga frá kl. 10:00 til 17:00 ef veður leyfir.

GO-KART club Tenerife:
Sagður einn af bestu go-kart ökubrautargarði í Evrópu. Þetta er skemmtileg afþreying fyrir alla fjölskylduna. Hægt er að fá nánari upplýsingar í hótelmóttöku eða hjá fararstjórum í viðtalstímum.
Freebird One sigling:
Þetta er sigling sem farin er frá höfninni í Puerto de Colón sem er við Costa Adeje. Í ferðinni er siglt meðfram ströndinni þar sem skoðaðir eru hvalir og höfrungar.
Síðan er boðið upp á mat um borð. Siglingin tekur um fjóra tíma.

Medieval kvöldskemmtun:
Kvöldskemmtun fyrir alla fjölskylduna þar sem riddarar miðalda sýna listir sínar. Boðið er uppá burtreiðar, bardagar og dansandi hesta yfir borðhaldi.
Submarine kafbátaferð:
Þessi kafbátaferð fer á klukkutíma fresti alla daga frá höfninni í San Miguel. Frábær leið til að komast í kynni við hið margbrotna dýralíf neðansjávar. Kafbátafyrirtækið býður uppá rútuferðir frá hótelum nokkrum sinnum á dag. Hægt er að fá upplýsingar hjá hótelunum eða í viðtalstímum hjá fararstjórum.
Piramide Arone sýningin:
Þetta er einnig kvöldskemmtun þar sem þema sýningarinnar er söngur, dans og tónlist að spænskum hætti.
Jeep Tenerife, jeppaferð:
Dagsferð með jeppum um eyjuna þar sem fyrsta viðkoma er á útsýnisstaðnum La Escalona og þaðan er haldið til Vilaflor. Í ferðinni er einnig farið um þjóðgarðinn Teide og stoppað í Chío, Masca og Tamaimo.
Jeep Comera, ferju og jeppaferð:
Þessi ferð hefst ferjusiglingu frá Tenerife til eyjunnar La Gomera. Þar er farið í eins dags jeppaferð með enskumælandi fararstjóra.
LA Gomera / F.Olsen dagsferð:
Dagsferð til La Gomera þar sem farið er vítt og breytt um eyjuna. Lagt er af stað frá gististöðum snemma morguns (tími staðfestur hjá fyrirtækinu) og ferja tekin yfir til La Gomera. Í ferðinni er hádegisverður innifalinn.
Fararstjórar VITA veita allar nánari upplýsingar um ferðir á staðnum.
Flogið með Icelandair!
Við fljúgum allt árið með Icelandair. Láttu þér líða vel um borð og njóttu afþreyingar og frábærrar þjónustu Icelandair alla leið til Tenerife og aftur heim.
Veldu þitt sæti
Þú getur valið þitt sæti um borð í vélum Icelandair gegn vægu gjaldi þegar þú ferðast með okkur. Skoðaðu þennan möguleika í bókunarferlinu og hafðu ferðalagið eins og þú vilt hafa það!
Nýttu og safnaðu Vildarpunktum
Allir sem ferðast með VITA safna Vildarpunktum. Þá má síðan nýta í valdar ferðir hjá VITA næst þegar þig langar í ferðalag.
Tenerife er með eitthvað fyrir alla!
-
Veðrið
-
Flugtími
Kef
TFS
5,5 klst
Morgunflug
-
Gjaldmiðill
€Evra
Gengi
-
Bjórverð
2-4 EUR
-
Rafmagn
220 Volt